Viðskiptavinir

Ferðaskrifstofa Íslands

ZEUS sér um alla forritunarþjónustu fyrir Ferðaskrifstofu Íslands, sem rekur ferðaskrifstofurnar Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir. Við sérforrituðum kerfi sem heitir Óðinn sem er bakendakerfi sem sér um allar bókanir sem koma inn til þeirra, heldur utanum allt sem viðkemur rekstri ferðaskrifstofanna.

Eco Viagens

Eco Viagens er Portúgölsk ferðaskrifstofa sem notar bókunarkerfið okkar, hann Óðinn (ODIN).

Ferðaþing

Ferðaþing er nýtt markaðstorg fyrir íslenska ferðaaðila. Bókunarkerfi ZEUS, Óðinn, liggur til grundvallar þessu markaðstorgi og væntum við hjá ZEUS mikils til þessa samstarfs í framtíðinni.

ND á Íslandi

ND á Íslandi er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu ökusírita fyrir þá sem reka stóra bílaflota. ZEUS sér um forritun á vefkerfi ND sem ber heitið SAGAsystem. Það gerir viðskiptavinum ND kleift að skrá sig inn hvar sem þeir eru staddir í heiminum, og sjá upplýsingar um sín farartæki, jafnvel í rauntíma. ZEUS hannaði og forritaði einnig heimasíðu ND, á 3 tungumálum.

Credit Info Ísland

Creditinfo er leiðandi fyrirtæki í miðlun fjárhags- og viðskiptaupplýsinga en auk þess býður fyrirtækið upp á fjölbreytta fjölmiðlaþjónustu.

Holiday Autos AB

Sænska ferðaskrifstofan Holiday Autos AB er hluti af Travelocity samsteypunni. ZEUS sér um forritun á veflausnum fyrir Holiday Autos.

Aðrir viðskiptavinir

ZEUS web works ...

... þar sem vinnan gengisfellur ekki.