Sagan

Sagan af ZEUS

Við ætlum ekki að plata … við erum ekki stórt fyrirtæki. 3 starfsmenn, skrifstofa og nokkrir viðskiptavinir. Ekki mikið meira en það. En við höfum mikinn metnað, kraft og ástríðu sem við viljum smita okkar viðskiptavini af. Þó við séum bara 3 enn sem komið er, er engin hætta á að við getum ekki hugsað vel um okkar viðskiptavini. Þeir eru okkar besta auglýsing, og við gerum okkar besta til að þeir fái það besta.

ZEUS web works ehf var stofnað haustið 2006 af Árna Gunnari Ragnarssyni. Hann er ennþá eini eigandi ZEUS og líkar það bara vel :)

Eftir aðeins hálfsárs starfsemi stækkuðum við um helming, Guðmundur Þór Magnússon bættist í hópinn. Og aðeins tæplega ári síðar stækkuðum við um önnur 50%, þegar Pétur K. Árnason settist í þriðja forritunarstólinn.

Við leggjum áherslu á að hafa skemmtilegt í vinnunni og viljum smita okkar viðskiptavini af þeirri jákvæðni sem við höfum að leiðarljósi allann daginn.

ZEUS web works ...

... þar sem tónlistin stoppar aldrei.