Ráðgjöf

Við hjá ZEUS veitum alla almenna ráðgjöf varðandi vef tengd málefni. Hafðu samband við okkur ef þig vantar frekari upplýsingar.

Leitarvélabestun

Við hjá ZEUS höfum mikla reynslu í að bæta stöðu vefsvæða hjá leitarvélum heimsins. Það er mikil kúnst að láta vefinn sinn finnast á helstu leitarvélum. Við getum tekið út vefsvæðið þitt, skilað skýrslu um það og bent á leiðir til úrbóta svo að þú fáir fleiri gesti inn á vefinn þinn og hann uppfylli hlutverk sitt betur.

Viðmótshönnun

Það er ekki auðvelt að hanna og smíða vefkerfi sem allir geta notað. En við hjá ZEUS höfum mikla reynslu í viðmótshönnun og höfum nýtt okkur viðmótsprófanir í okkar vinnu um langt árabil.

Viðmótsprófanir

Þegar við erum að lenda í vandræðum með vefsvæðin okkar og sjáum að fólk er ekki að finna það sem það leitar að, eða nær ekki að klára söluna sem við viljum að það geri, þá er heillaráð að setja vefkerfið í notendaprófanir. Þá eru óvanir, sem og vanir notendur settir inn í lokað umhverfi og fylgst með notkun þeirra á vefnum og niðurstöðurnar svo greindar eftir kúnstarinnar reglum til að reyna að bæta vefkerfið þannig að það skili meiri tekjum og uppfylli þær kröfur sem okkar viðskiptavinir setja til sinna kerfa.

ZEUS web works ...

... þar sem vinnan gengisfellur ekki.