Færsla

iPhone

14.6.2008 Árni Gunnar Ragnarsson iPhone er merkilegt fyrirbæri. Tæknilega séð er hann verri en flestir aðrir í svipuðum flokki. En samt selst hann eins og heitar lummur. Og þó hann hafi sínar takmarkanir, þá langar mig í eitt stykki. Af hverju?

Af því hann er kúl. Rosalega kúl. Hann er flottur. Hann er stöðutákn. Hann er öðruvísi en allir aðrir símar.

Flestir aðrir símaframleiðendur hafa reynt að afrita það sem er flott við iPhone, en ekki tekist. Og enginn komist nálægt því einu sinni.

Sony - Ericsson er að koma með fyrirtækissíma sem kemst ansi nálægt því, XPERIA1 símann. HTC kemur með touch diamond símann. Og þó svo að HTC síminn sé tæknilega betri en iPhone 3G, þá á hann ekki eftir að komast með tærnar þar sem iPhone hefur hælana, ekki nálægt því einu sinni. Ekki Sony Ericsson síminn heldur.

Það er bara eitthvað sérstakt við Apple vörurnar.

Og nú er að koma ný útgáfa af iPhone, iPhone 3G. Flestar þær takmarkanir sem voru á símanum áður eru farnar út um gluggann. Meiri hraði, lengra líf í rafhlöðunum og allt að 16GB í minni.

Þetta er náttúrulega bara rugl ... hvernig á að vera hægt að keppa við svona græju ?

Mig langar í einn svona, ekki seinna en 11. júlí þegar sala hefst. En það er því miður ekki hægt.

Síminn er aðeins seldur í gegnum símafyrirtæki og Íslensku símafyrirtækin eru ekki á lista Apple yfir viðskiptavini, því miður. Og þá er engin leið fyrir okkur hérna á skerinu að fá símann, nema með því að kaupa hann í útlöndum, hakka stýrikerfið í honum svo við getum haldið honum opnum fyrir símafyrirtækin hér. Og það er ekki góður kostur til lengdar litið. Það er stöðugt verið að uppfæra hugbúnaðinn í símanum og loka fyrir leiðir til að hakka hann.

Svekk, svekk ...

Ætli maður verði ekki að láta Sony Ericssson eða HTC Touch Diamond duga þangað til Íslensku símafyrirtækin hysja upp um sig buxurnar ...

ZEUS web works ...

... þar sem vinnan gengisfellur ekki.