Færsla

Velheppnað innflutningspartý og algjör geðveiki

20.5.2008 Árni Gunnar Ragnarsson ZEUS hélt innflutningspartý í nýjar höfuðstöðvar síðastliðið föstudagskvöld. Viðskiptavinir, starfsmenn og aðrir velunnarar fögnuðu nýju húsnæði með okkur og gerðu sér glaðann dag.

Það var vel tekið á því langt fram eftir kvöldi í pool-spili, svalandi drykkjum og góðum mat. Örn Garðarsson kokkur sá um veitingarnar og nágrannar okkar í Heiðrúnu sáu um drykkina.

Ég vil þakka öllum sem mættu á svæðið, þetta var rosalega gaman og gott að geta leitt saman starfsmenn og viðskiptavini svona fyrir utan venjulegu verkefnin.

Svo var mér bent á þetta á netinu um daginn ... talandi um að feta einstigi, þetta er algjör klikkun.


- Árni Gunnar

ZEUS web works ...

... þar sem tónlistin stoppar aldrei.