Færsla

Ferðaþing

20.5.2009 Árni Gunnar Ragnarsson Ferðaþing er nýtt fyrirtæki að hluta til í eigu ZEUS web works ehf. Ferðaþing rekur miðlægt markaðstorg fyrir íslenska ferðaþjónustu og notar ODIN bókunarkerfið sem ZEUS hefur þróað síðustu árin.

Ferðaþing fer gríðarlega vel af stað og hefur gert samninga við stóra söluaðila sem vilja nýta sér miðlægan gagnagrunn þjónustuveitenda. Reynslan af ODIN bókunarkerfinu hefur verið gríðarlega góð hingað til og engin meiriháttar vandamál komið upp.

Við höfum bætt við ODIN kerfið nokkrum minniháttar hlutum til að auka samkeppnishæfni Ferðaþings og hefur það mælst gríðarlega vel fyrir.

Við væntum mikils af samstarfinu við Ferðaþing næstu árin og erum þess fullvissir að íslenski ferðamarkaðurinn kemur til með að taka vel á móti þeim lausnum sem Ferðaþing hefur upp á að bjóða.

ZEUS web works ...

... þar sem vinnan gengisfellur ekki.