Nýr viðskiptavinur
12.4.2008
Árni Gunnar Ragnarsson
CreditInfo Group er nýjasti viðskiptavinur ZEUS. Við komum til með að endurhanna og smíða vef fyrir Credit Info Ísland. Þetta er yfirfærsla á vef sem keyrir núna á Informix gagnagrunni og verður færður yfir í .NET 3.5 og keyrður á SQL Server 2005.
Þekking ZEUS á Informix gerir okkur kleift að vinna þetta verk fljótt og örugglega.
Credit Info Ísland mun einnig nýta krafta ZEUS í frekari verkefni í framtíðinni.
Við hjá ZEUS erum gríðarlega ánægð með að hafa bætt enn einum demantinum í keðju frábærra viðskiptavina og væntum þess að samstarfið við Credit Info verði langt og gjöfult fyrir báða aðila.
Credit Info er sameinað fyrirtæki Lánstrausts og Fjölmiðlavaktarinnar.