Færsla

Óðinn 3.0 og þrjú ný vefsvæði

21.1.2009 Árni Gunnar Ragnarsson Við hjá ZEUS settum í dag þriðju kynslóð Óðins, bókunarkerfi sem við höfum forritað og smíðað í samvinnu við Ferðaskrifstofu Íslands. Í leiðinni opnuðum við 3 ný vefsvæði, sem öll keyra á Dísill vefumsjónarkerfinu frá Atóm 01, en þó þétt tengd Óðni.

Það er gríðarstór áfangi fyrir okkur hjá ZEUS að koma útgáfu 3.0 í rekstur. Það er fullt af hlutum sem bætast við í þessari útgáfu, t.d. er nú hægt að pakka hlutum saman á auðveldari hátt, miklu betri aðgangsstýring og auðveldari umsýsla. Við léttum aðeins á útliti kerfisins, en gerðum engar verulegar breytingar þar á.

Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir fengu öll smá andlitslyftingu í dag, þó aðallega var þetta breyting á undirliggjandi kerfum og þess að nú þjónustum við hjá ZEUS alla þætti reksturs Ferðaskrifstofu Íslands sem kemur að internetinu.

ZEUS web works ...

... þar sem tónlistin stoppar aldrei.