Færsla

Nýr staður, nýr vefur og nýtt blogg

1.4.2008 Árni Gunnar Ragnarsson Það verður mikil breyting á aðstöðunni hjá okkur þremur við flutninginn upp á Krókháls. Við erum að flytja úr 20 fermetrum í rúmlega 160 fermetra. Við getum leyft okkur að færa okkur aðeins úr stað við vinnuna á nýja staðnum. Það er eiginlega of mikið pláss hérna núna, því það er langt á milli okkar og mikið opið ónýtt pláss. 2 skrifstofur sem eru tómar eins og er og stórt húsgagnalaust eldhús.

Við höfum fjárfest í nýjum starfsstöðvum frá INNX, borð sem hægt er að hækka og lækka með rafmagnslyftum. Þannig að nú getum við unnið miklu meira og betur en við gerðum áður :)

Um leið og við flytjum setjum við nýjann vef í loftið. Hann keyrir á Dísill 4.0 vefumsjónarkerfinu frá Atóm01. Björn Kristinsson hannaði vefinn fyrir okkur og kunnum við honum bestu þakkir fyrir samstarfið.

ZEUS web works ...

... þar sem tónlistin stoppar aldrei.